Brostu framan í heiminn,þá mun heimurinn brosa framan í þig :)

Velkomin til okkar

07.11.2006 17:15:43 / saraogelfa

Jæja...

Við skulum bara segja að þessa síða sé dead.. Sara er svo dugleg að blogga og ekki ég og hún farin annað að blogga þannig að hér með er síðunni bara lokað.. ég nenni ekki að blogga finnst þetta hvort eð er ekkert skemmtó lengur.. og ef ég á smá tíma ekki að læra eða vinna þá nota ég hann í e-ð allt annað.. svo girls... Heyri í ykkur :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 13:30:36 / saraogelfa

Ný blogg síða...

Hæ elskurnar...ég er kominn með nýja blogg síðu http://sarak.bloggar.is/... það er ekki þannig að ég vilji ekki vera með Elfu minni heldur hefur hún ekki tíma til þess að blogga svo ég ákvað að fá mér aðra blogg síðu ...en ég er ekki búinn að yfirgefa þessa ég mun setja hérna inn öðruhverju svo Elfa mín ég er ekki farinn frá þér elskan......svo er líka linkur til hliðar...

Vona að þið kíkið á hina síðuna líka takk...

Kv Sörulingur


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 19:04:06 / saraogelfa

Viljið þið gera þetta fyrir Sörulinginn

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út ?

Gera þetta fyrir sörulinginn ef þið hafið tíma ....ef þið nennið því ekki KVITTA SAMT......:evil:

Kem svo með blogg á næstu dögum :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 18:37:09 / saraogelfa

Aftur til Ak ...........

Hallú people ....:lol:

Ég er aftur að koma til ak þessa helgi ......Elfa gella er að halda uppá afmælið sitt á laug svo ég verð nú að fara til ak til að vera með í fjörinu ...8)8)

Ég kem sem sagt á morgun og verð því miður að fara rétt eftir hádegi á sunn...:cry:.

En síðustu helgi fór ég til ak eins og stóð í síðustu færslu og það var  meira en GEGGJAÐ .:haha::haha:.....Elfa var svo rosalega sætust að ná í mig á vellinum ...takk aftur elskan  :D.....Pabbi hafði silung í matinn mitt uppáhald og lax fyrir mig á laug ...nammi nammi ....

Svo fór ég til Völu og þar var hún Eyrún snúlla og við byrjuðum að drekka ...Elfa var að vinna en svo kom hún í gleðina þegar hún var búinn að vinna...Ég held að nágrannar Völu hafi ekkert sofið fyrr en við fórum niður í bæ hehe...það var tekið svo mikið af myndum þetta kvöld og það voru Elfa og Vala sem sáu um það......ég sé enn stjörnur........8|

Það var geggjað á djamminu því miður fór Eyrún fyrr af djamminu var að fara í sveitina sína .....En sem sagt þetta var geggjað djamm ....Og frábærari helgi ...

Þóra mín leiðinlegt að geta ekki hitt þig elskan....hvað ertu að gera annað kvöld ?? við verðum að hittast eitthvað núna um helgina það gengur ekkert annað elskan ???

Ég veit að þessi helgi verður ekki síðri ....hlakka svo til að koma til ak ..því ég veit eki alveg hvenar ég get svo komið aftur eftir þessa kannski ekki fyrr en í jan ..:cry::cry:

 

 

Reese Witherspoon & Ryan Phillippe Split


Reese Witherspoon og Ryan Phillippe eru að skilja ...æi mér finnst þau svo mikið æði saman en það er nú ekki nóg ....

 

DRAMATIC AFFAIR photo

ok þið verðið að fyrirgefa en er ekki stelpan með fólk til þess að mála sig ..mér finnst alltaf sjást meiklínan....

 

HOODED HOMEBOYS photo

Ég trúði þessu varla en (karlinn) til vinstri er Tyra Banks hún fór í þetta gerfi til þess að heira hvernig karlar tala um konur. Hún var að gera þetta fyrir spjallþáttinn sinn.......bara snild hehe..hún er svo flott en ekki alveg sem karl...:$

 

 

En þetta er komið fínt er farinn að pakka ......Hlakka til að sjá alla :haha:

Endilega skiljið eftir ykkur smá línu ....

 

                                            

 

 

 

                                              Kv Sörulingurinn ....

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 15:50:12 / saraogelfa

Ég er að fara á eyrinna....

Hæ bossarnir mínir ......

Núna er ég loksins fara til Ak, kem á föst og fer á sunn..

Hlakka svo rosalega til að hitta hinn helminginn af fjölskyldunni minni, ég get ekki beðið.....

En hvað er málið með snjó á Ak ég er ekki að fíla það, enginn snjór takk annars kem ég ekki...jú auðvitað kem ég. Ég ætla að knúsa fjölskylduna mína svo mikið að þau geta varla andað..oj..

En auðvitað hlakkar mér geggjað til að hitta ykkur elskurnar mínar.

Eyrún sæta mín er líka að fara til Ak þessa helgi og við ætlum mjög líklega að kíkja á djammið með Völu skvís og Elfu gellu..á laug....vonandi verður hörku stuð.

 

Svo ég snúi mér að öðru þá er ég að verða brjál við að gera ritgerðir ....vá ég er að gera ritgerðir í hverri viku þetta er bara ritgerða skóli það er á hreinu.....kennararnir segja að þetta undir búi okkur undir Háskólan sem það gerir, en ég nenni ekki gera fleiri ritgerðir takk fyrir...ég er ekki kominn í Háskóla svo ég nenni ekki að vera að gera þetta í hverri einustu viku....

 

En stelpur má ekki Tobbi minn koma með á djammið því ég ætla ekki að sleppa honum þegar ég kem til Ak ...??? Ok það er nú kannski ekki við hæfi en ég mundi gera það ef  það mætti....

 

Elfa beigla ertu búinn að fá frí á laug ?? Þú mátt ekki vera að vinna svona þegar ég og Eyrún erum að koma !!!!

 

Ég var að vinna um helgina með Eyrúnu elsku og ein af  konunum sem er að vinna með okkur bakaði vöfflur handa öllu liðinu, þær eru svo sætar í sér þarna.

Það munar svo miklu að vera að vinna með Eyrúnu. Ég var að vinna á föst og tíminn leið ekkert........Svo var ég að vinna með Eyrúnu á laug og sunn og það var nú allt annað líf...... Eyrún mín við verður að vinna meira á sömu tímunum svo við höldum geðheilsu ??

 

En núna á ég að vera að læra og auðvitað eru það ritgerðir sem ég er að gera..og  4 takk fyrir...því ég þarf að skila 2 ritgerðum á mán og ég ætla mér nú ekki að vera að læra á Ak svo ég er að gera þær núna ojoj....

Þetta er komið fínt er búinn að röfla nóg um lærdóm og er farinn að læra..

 

 

PROTECTIVE CUSTODY photo



 

Hún er nú með stórar varir eins og mamma sín ......



 

 

A GOOD FIT photo



 

Ég hélt nú ekki að það mundi fara henni að vera dökkhærð en mér skjátlaðist .....

 

SLIM SHADY photo

Ég veit nú ekki hvort maður á að segja flottur bíll að innan eða líkbíll að innan??

 

Hlakka svo til að sjá ykkur bossarnir mínir...

Og ég þarf nú varla að segja, kvitta takk ...!

 

Kv. Sörulingur.


» 17 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 15:26:23 / saraogelfa

Söknuður.

 

 

Hæ elsku lubbarnir mínir .

Ég ætla ekki að blogg mikið núna því ég er að fara í skólan eftir smá.

En síðustu helgi kom Alli bróðir og Hrabba sæta til Rvk og ég og mamma fórum út að borða með þeim á laug á Hornið þar sem bestu pitsur fást vá þær eru svo geggjaðar þar þær eru eldbakaðar og eru geggjaðar. En allavega þá fórum við 4 út að borða og það var æðislegt að sjá þau hann Tristan var nú á Ak hjá mömmu Hröbbu svo ég gat ekki séð hann, því miður en það var svo gott að hitta Alla og Hröbbu . Við fórum á Hornið um 6 og við vorum þar í næstum 4 tíma að spjalla. Vá hvað ég saknaði þeirra.:$

 

 En núna um helgina gerði ég nú ekkert nema að vinna ég vann í 8 tíma á föst, 10 tíma á laug, og 8 tíma á sunn og gerði því ekkert mikið meira. En það var nú Akureyrar djamm á laug á Hverfis en ég var svo þreitt eftir vinnu að ég lagði ekki í það en mig langaði svo ( vá maður er bara orðin gamal og þreittur ojoj )

 Ég er bara á fullu í skólanum, maður er nú kominn með smá skóla leið en maður verður að drulla sér að klára þetta, er það ekki Elfa erum við ekki að fara að klára þetta loksins ??

 En það er frí í skólanum á fimmtudaginn og föstudaginn sem er bara snilld svo þetta verður nú bara stutt skóla vika.

Ég sakna allra svo mikið á Ak núna og langar svo að koma.

Ég verð nú að segja frá því að mig langar svo í annan hund það er tegundin japanskur chin sem mig langar svo í að ég er springa en mamma er að róa mig niður hehe.Hvað finnst ykkur á ég að fá mér annan hund ?? Elfa ég veit að þér er svo vel við hunda eða hitt og heldur, hvað finnst þér ??

 

 

En ég fór í zöru um daginn og keipti mér peysu en það er nú ekki frásögu færandi nema að ég fer heim og skelli mér í hana og fer svo fram að sína mömslu og mamma segir þá við mig, Sara mín það er gat á peysuni. Neinei það var gat á erminni og ég var brjál því ég er svo að fíla þess peysu svo ég fer aftur í kringluna  í zöru og tala við einhverja stelpu um þetta og hún segir við mig, ég held að þær séu allar búnar en ég skal gá til öryggis svo hún fer að gá og kemur aftur með aðra peysu og segir við mig þú varst heppin þetta var seinasta peysan og einmitt í xs. Ég var ekkert smá ánægð því þetta er svo þægileg peysa og ég er svo að fíla hana. Ef hún hafði ekki verið til þá hafði ég saumað gatið á hini haha. Það er nú lítið sem þarf til að kæta mig (greinilega).

 

Eyrún sæta er núna í útlöndunum og vonandi að skemmta sér konunglega...vá hvað ég væri til að vera með henni...:haha:

 En núna verð ég að fara í skólan elskurnar kem með fleiri fréttir seinna.

 

 

 

Það er ekki leiðinlegt að fá nokkrar línur frá ykkur ...svo þið megið nú endilega kvitta....


» 13 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 16:58:47 / saraogelfa

hallú snúðar -Sara-

Hæ sæturnar mínar það er allt gott að frétta af mér. Ég er bara í skólanum og hann er mjög fínn ég er bara núna að geta ratað í honum hehehehehe...kennarar fínir og allt það. Það er svolítið mikið að gera í skólanum og er því alltaf að læra. Ég er byrjuð að vinna á 118 með skólanum með Eyrúnu minni og er bara að vinna aðra hverja helgi sömu helgar og Eyrún elska svo það er geggjað að vinna með henni. :haha:

En ég er svo að fíla mig í Rvk og líkar þetta rósalega vel er reyndar búinn að missa mig í verslununum hehehehe en ég er að átta mig á því að ég þarf ekki alltaf að vera að kíkja í búðirnar því þær verða þarna hehehehe ég og Eyrún fórum í kringluna um helgina og ég bað Eyrúnu á endanum að taka kortið mitt af mér hehehehe en bara gaman að því. Ég sakna allra auðvitað og tobba minn svo mikið en hann gat ekki flutt með mér vegna þess að mamma á kött sem tobbi er alltaf að reyna að éta en vona að ég geti tekið hann seinna svo hann er bara á Ak og ég er ekki alveg að fíla það en þetta er að koma hjá mér :cry:, ég var svona aðeins fyrst að reina að tala við hann í síma hehehe já ég veit að það er nú ekki hægt að tala við hund í síma en það mátti reyna .....8|

Ég er núna bara að læra á thorvaldsen sem mér finnst mjög fínn staður og ég og Eyrún erum að fíla þetta kaffihús í gær komum við hingað og fengum okkur te og te pokinn var svona turn og hann stóð þá uppúr bollanum og við vorum mikið að hlægja af þessu hehehe :D ( við erum ótrúlegar ég veit ) svo vorum við aðeins að skemmta okkur með hnetur hehehe ( no comment á því )......8)

En allavega þá hef ég það frábært og er bara á fullu í skólanum svo ætla ég og Eyrún að kíkja í keilu um helgina við erum í fríi og aldrei að vita nema maður fér sér mohito í keilunni þar megin sem það má drekka ....en ég ætla að halda áfram að læra er að gera ritgerð svo adios elskurnar mínar og allir að kvitta og koma til rvk í heimsókn en ég fer að kíka til ykkar á Ak...:haha:

BABY BOOK photo

Að lokum finnst ykkur hún  Suri ekki pínu eins og grænlendingur en samt sæt:)


» 12 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 16:58:40 / saraogelfa

BloggiBlogg *Elfa*

Jæja þá kemur eitt blogg..

Ég veit að það er langt síðan ég skrifaði síðast en hey... heh

En það er ekki mikið að frétta af mér svosem.. Er byrjuð í skólanum sem er svona þokkalegt... Stúdent here I come:)!!

Ég er enþá að vinna hjá pabba mínum á gistiheimilinu.. átti að hætta í ágúst en það er svo mikið bókað í september svo að það lengdist um mánuð sem er bara fínt peningarlega séð.. Ég hætti að vinna í bíóinu í lok júlí en sakna þeirra rosalega mikið. Það sem tekur svo við hjá mér í október er svo Greifinn.. Já þið lásuð rétt ég er að fara vinna þar aftur að þjóna:) Verð nú bara aðra hverja helgi en það er fínn penningur sem ég fæ út úr því:) Þannig að nú þurfiði að fara skella ykkur á Greifann að borða og fá góða þjóustu hjá mér:)

Ég skellti mér á djammið á laugardaginn og það var svo gaman.. Skellti mér með Jónu sætu minni í 1sta skipti í laaaangan tíma :) Við gerðum allt vitlaust ég og hún.. drukkum aðeins meira en við hefðum átt að gera:)

En annars þá er Sara og Eyrún elskurnar mínar búnar að skilja mig eftir hérna á Akureyrinni.. Ég ætla að skella mér suður til þeirra í Október svo ef það er einhver sem vill koma með suður endilega látið í ykkur heyra...=)

En jæja ég ætla að halda áfram að læra...

Þetta var mjög leiðinlegt blogg en svona er þetta bra.. ætlaði bra að láta ykkur vita að ég væri á lífi:):)

:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 17:25:07 / saraogelfa

HæHæ -sara-

Hæ elskurnar mínar ég veit að ég er ekkert búin að blogga ég bara nennti því ekki

En ég er búinn að vera að vinna í allt sumar og ekkert búinn að djamma neitt þannig og ekkert sérstaklega skemmtileg búið ské hjá mér nema að síðustu helgi bauð ég og eyrún stelpunum í indverskan mat og auðvitað ís og mars sósa í eftir mat, við spiluðum og hoppuðum á trampólininu mínu sem þurfti svo að enda snökkt heheheh ;) O ég vil bara þakka stelpunum fyrir æðislegt kvöld þetta var æði gæði ;)

En núna á föst er ég að flytja suður til hennar Elsku mömmu minnar (loksins) og sem betur fer er Eyrún mín og Halla mín að flytja líka. En ég mun sakna ykkar allra svo mikið en ég mun nú koma svona einu sinni í mán svo þið losnið nú ekki við mig svona auðveldlega :haha: Og þá hef ég nú aknnski eitthvað meira að segja og get þá bloggað eitthvað skemmtilegt :^)

En ég er að vinna svo ég get nú ekki skrifað meira er búinn í pásunni minn en skal koma með betra blogg næst sem verður bara í borg óttans :$ Svo þangað til þá segji ég bara að mér þikir svo vænt um ykkur öll og mun sakna ykkar svo mikið og þið verðir að koma í heimsókn annars verð ég brjál :haha:


» 11 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 19:59:08 / saraogelfa

Svo sorglegt - sara-

Strákur keyrir móturhjól með kærustuna sína aftaná í 90 km/t.
Stelpan : Geturu minnkað hraðan smá. ég er hrædd
Strákurinn : Nei þetta er gaman.
Stelpan : Nei, það er það ekki. Gerðu það, þetta gerir mig hrædda.
Strákurinn : Segðu þá að þú elskir mig.
Stelpan : okey. Ég elska þig. Keyrðu rólegra núna!
Strákurinn : Knúsaðu mig.
Stelpan: Knúsar hann.
Strákurinn : Geturu tekið hjálminn minn og sett hann á þig? mér klæjar af honum.
Í blöðunum næsta dag :
Móturhjól keyrði útaf veginum og klessti á hús því að bremsurnar virkuðu ekki. Tvær persónur sátu á, bara ein lifði þetta af.


Sannleikurin er sá að þegar þau voru komin niður hálfa brekkuna þau keyrðu, fann strákurinn það út að bremsurnar virkuðu ekki, en hana vildi ekki að stelpan mundi finna það út. Í staðin fékk hann hana til að segja að hún elskaði hann og bað hana um að knúsa hann í síðasta skipti áður en hann sagði henni að taka hjálminn hanns og nota hann sjálf svo að hún mundi lifa þetta af, þótt að hann vissi að hann mundi deyja

þessu stal ég af annari síðu ooo lame0þetta er bara svo sorglegt

 

 

Ps. Ég veit að ég er búinn að vera löt að blogga en bara nenni því ekki sorry :$


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 19:32:33 / saraogelfa

BLOGG *Elfa*

Jæja jæja þá loksins kom ég mér í það að skrifa nokkrar línur :)

En þetta er orðið eitthvað agalega þreytt hjá okkur þessi síða, þannig það er nú bara spurning hvort maður eigi að halda þessu rugli áfram eða hvað?

En annars er það ekkert mikið að frétta eins og vanalega.

En ég Sara, Sigga, Begga og Rakel skeltum okkur á hestbak um daginn sem var bara skemmtilegt og takk æðislegt elskurnar fyrir það, en þið sem ekki vitið þá gerðum við okkur góðan dag,

við fórum á hestbak og planið var að fara á hestbak kl. 11 en bíllinn sem Begga var á hehe hann bra rakst niður og eitthvað rugl því við vorum OF feitar, nejnej svo við urðum að snúa við og haldiði ekki að Begga hafi fengið Pikkupinn sem mamma hennar og pabbi eiga, ekki var það slæmt, við 5 gellurnar að þeysast um á leið á hestbak í mögnuðum bíl.. AHHH svo sweet....!

Komum svo heim og ég Sigga og Rakel fórum í ljós og pottinn :) Ahh hvað það var nice....:) Eftir það var haldið að fá sér að boða með þeim, og Beggu og köllunum þeirra Siggu og Rakelar =) Svo ákváðum ég og Begga að fara í vín að fá okkur ís og eftir það tók við bíó, og stelpur mínar TAKK ÆÐISLEGA FYRIR þessi dagur var í alla staði alveg yndislegur og það er allt ykkur að þakka.

En annars er það síðan bara að vera vinna.... Og fyrir ykkur sem ekki vitið að þá er ég að vinna síðustu vinnuvikuna mína niðurí bíói og það verður sko skrítið að hætta þar, en ákvað þar sem ég verð í svo miklu námi í vetur að einbeita mér að því, svo allir að koma í bíó þanngað til á sunnudaginn til að sjá mig þar í síðasta sinn....:) Nejnej vonandi ÞARF maður að hjálpa þeim einhvertíma....:) Þessar elskur!!

En ég var að fá mestu gleðifréttir í heimi áðan... Svona þar sem ég er að hætta niðurí bíó og verð þá bara hjá pabba þanngað til að skólinn byrjar þá ákvað pabbi minn að gefa mér frí um versló, ég er búin að vera vinna allar versló síðan ég var 12 eða 13 ára svo að ég get gert eitthvað skemmtilegt,, vá hvað ég get ekki beðið eruði að grínast.... ÉG ER SVO GLÖÐ :) ef einhver vill gleðjast með mér um versló endilega látið mig vita!! :)

Svo að ég er að spá í að halda smá Teiti í tilefni því um versló:) Eða já allavega mikið að spá í því.... Hvaða dag myndi henta ykkur elskurnar???

En hey hvenar eigum við að fara í rafting??? Þeir sem hafa áhuga að koma með endilega látið mig vita og hvenar þið komist:) :) Hvernig væri að fara í Rafting í Skagafirði og fara svo eitthvað að legja sumarbústað þar rétt hjá???? Grilla og fara í pottinn og gera okkur geggjað góðan dag?? Er einhver TIL!! en er að fara vinna svo að ég skrifa meira soon... LOFA...

ELFA GLAÐA KVEÐUR!!


» 18 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 18:21:37 / saraogelfa

Nýtt blogg... Elfan

Jæja einn einn dagurinn og enn eitt bloggið....

Ég hef nú ekki mikið að segja þar sem ég geri aldrei neitt sérstakt... J

En ég fór á djammið á föstudaginn, þá kom Rakel Rut og Elva Rut til mín og við sötruðum þar, en það var ekkert smá kósí hjá okkur spjölluðum um allt milli himins og jarðar... J Verðum að endurtaka þetta aftur fljótlega ....

En leið okkar lá á Kaffi Akureyri já kemur á óvart...En þarf var dansað af sér rassinn :o) Lenti í mjög skemmtilegu atviki en var lamin í öxlina af ónafngreindum aðila en ég er að koma til en er búin að vera að deyja.... Svo á laugard. Þá var kaffihúsast og svo á sunnudaginn var farið í bíó á The Fast and the Furious: Tokyo Drift sem er mjög skemmtileg mynd allavega var mér farið að verkja í eyrun þegar hún var búin .. spenna allan tímannJ

 

En stelpur stelpur þá er komið að því... Farið verður á HESTBAK með Pólarhestum kl. 12:00 8 júlí eða á laugardaginn í 3ja tíma ferð.. 5500 kjellinn með kökum og kaffi....?? Hvernig líst ykkur á það?? Hvað segiði svo um að gera e-ð fun síðan það sem eftir er af deginum J ???

 

Jæja verð nú að deila með ykkur fótboltamyndum, Skil ekki alveg hvað karlmenn kalla fótbolta miðað við þetta????

 

 


Jáhá.. þarna fáum við að sjá eitt stykki rass

 

 

 


  Ætli þessi vilji fá e-ð blow***

Og god ekki svona BRÓÓK.... Nú get ég ekki sofið..

 

 

 


Þessi líka?? What is going on

 

 

 
Strákar strákar að aftan líka

 

 

 

 


  Ég er hreinlega ekki viss um að þetta sé fótbolti lengur

 

 

 

 

 


Alveg rólegur að hoppa skilluuurrruuu.. Og andlitið á gaurnum bra í rassinum á honum

 

 

 


Þessi þurfti e-ð að þukla

 

 

 



Víst að leikurinn er búinn þá er hafist handa

 

Svo er ég með eina mynd í viðbót sem ég verð að setja með hún er aðeins of fyndin.. En sjáið manninn ekki konuna.. Horfið til HÆGRI og hlutir liggja til hægri....

 

 



 



 


Múhahaha nú getur enginn sofið í nótt....!!!


 

En jæja ég skrifa eitthvað meira þegar ég hef frá einhverju að segja eða einhverju sem skitptir ekki neinu máli eins og núna =)

 

Kossar og knús

Elfan kveður


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 14:29:55 / saraogelfa

Hef svosem ekkert að segja... *Elfa*

Jæja ákvað að henda inn nokkrum línum..

En þetta blogg er alveg tileinkað Rakel minni sem er farin aftur "til það sem hún kallar heim núna" Noregs... Sakna þín alveg geggjað æðibitinn minn :(

 



En jámm ég skellti mér á djammið á laugardaginn, það er sko ekki frásögufærandi... úff púff hefði alveg mátt drekka aðeins minna... jájá ég drakk aðeins of mikið og þeir sem sáu mig þetta kvöld eru eflaust sammála því... :) En það var bara gaman af því... Og greyið Bubbi Kristján skutlaði mér heim held ég hafi ekki verið alveg sú skemmtilegust... En hann skutlaði mér ekkert strax heim svo ég hef kannski verið ágæt svosem hahaha keypti franskar handa okkur og eitthvað rugl :) Ég sem skil ekki fólk sem er að stela glösum af skemmtilstað og taka með heim?? já ég endaði með eitt glas heima hjá mér, tók eftir því þegar ég vaknaði óendanlega þunn daginn eftir :)

    


En þá tók vinnan bara við eins og always... Eru einhverjir fleiri orðnir hálfleiðir á að vinna alla daga??? Vill einhver stinga af með mér :) En það kom margt skemmtilega á óvart í vinnunni á sunnudaginn :)

En útí annað þá er ég í fríi í bíóinu alla næstu viku frá 3 - 9 júlí, Vegna þess að elskulegi pabbi minn á afmæli 5 júlí og mamma mín ætlar e-ð með hann í burtu frá mér:( og enn eina ferðina verð ég að sjá um gistiheimilið ein.... LOVE IT !! :(

En svo kemur systir mín 7 - 17 júlí stelpur mínar þið sjáið ekki mikið af mér þá... En ég og systir mín ætlum að fara í Skagafjörðin í RAFTING og ég get svoooo ekki beðið eftir því...

 


Svo er það hvalaskoðun ekki svo löngu eftir það...

 


En það eru ýmis fríðindi sem fylgja að vera dóttir pabba míns... frítt í hitt og þetta... Svo bara ef einhver bíður sig framm í að koma með mér á hestbak þá væri það æðislegt... :) Þá munduði gera Elfu litlu rosalega hamingjusama:)

 


Svo er ég að hugsa um að skella mér til DK áður en skólinn byrjar, svona þar sem pabbi er Dani fær maður alltaf styrk frá honum :) múhahaha... Þetta fer að verða árlegur liður hjá mér...

En jæja er að hugsa um að hendast í vinnuna... Ég nenni ómögulega að skrifa meira...

Verið góð hvort við annað...

Elfa


» 17 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 15:26:22 / saraogelfa

Endilega spreytið ykkur *Elfa*

Ég veit ekki, vitið þið svörin??

1. Hvað kallarðu mig?
2..Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?
3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?
4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?
5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?
6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
8. Hvernig stelpa er ég, og hvaða týpu flokkarðu mig?
9. Hvað erum við mörg í fjölskyldunni?
10. Hefurðu öfundað mig? Hvers vegna?
11. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
12. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
13. Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
14. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?      


 15. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
16. Hvernig stráka fíla ég?
17. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
18. Hvað er mest einkennandi við mig?
19. Hvaða búðir elska ég að fara í?


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 22:05:08 / saraogelfa

Er þetta ekki Bull ég bara sp ?? hahahahahah -sara

Venjulega er efnið í fljótandi formi og fæst nú næstum hvar sem er. Það er til á flöskum, dósum, úr krana og jafnvel í stórum kútum. Kvensniftirnar nota "bjór" í samkvæmum og á börum til þess að véla karlkyns fórnarlömb heim með sér og í bólið.

Venjulega nægir konunni að fá karlmanninn til að innbyrða nokkrar einingar "bjórs"og bjóða honum síðan heim til kynlífs án nokkurra skuldbindinga.
Þessar aðfarir duga til þess að gera karlmenn gersamlega bjargarlausa. Eftir neyslu margra "bjóra" kemur iðulega fyrir að menn falla í þá
freistni að stunda kynlíf með kvenfólki sem þeir að öllu jöfnu myndu aldrei líta á.

Að lokinni "bjórdrykkju" vakna karlmenn oft án þess að muna glöggt hvað gerðist nákvæmlega kvöldið áður, gjarna þó með sterkt hugboð
um að eitthvað slæmt hafi átt sér stað. Stundum kemur það fyrir að þessir ólánsmenn eru dregnir inn í þekkta svikamyllu sem kallast "samband."

Vitað er um tilfelli þar sem kvenfólki hefur tekist að hneppa karlmenn í langvarandi og alvarlega útgáfu þrældóms, refsinga og niðurlægingar sem kallast "hjónaband". Að því er virðist eru karlmenn líklegri til að verða fórnarlömb þessarar svikamyllu eftir að kvenmaðurinn er búinn er að neyða í þá "bjór" og lofa kynlífi.

Vinsamlegast sendið þessa aðvörun til allra karlmanna sem þið þekkið.

Ef þið eruð þegar fórnarlömb þessa hræðilega nýja efnis, "bjórs", og kvenþrjótanna sem beita því er rétt að benda á sérstaka stuðningshópa karlmanna sem búið er að koma á fót á flestumþéttbýlisstöðum, en í þessum hópum má ræða sín vandamál á opinskáan og ærlegan hátt við karla
sem margir hverjir hafa lent í þessum hremmingum. Finna má þessa stuðningshópa í símaskrá víðast hvar undir heitinu ...... Golfklúbbur.

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6